Tuesday, 29 September 2009

Fyrsti leikur og fleira...

Jæja þá kom loksins af því að undirbúningstímabilið endaði og deildin byrjaði, fyrsti leikurinn okkar var á heimavelli við lið sem heitir Argos sem er staðsett svona klukkutíma fyrir utan Aþenu.

Ég er búinn að vera e-ð meiddur síðustu 2 vikur og hef ekki getað æft á fullu en var nú samt í byrjunarliðinu í þessum leik, spilaði sem vinstri skytta í sókn og fyrir aftan í 3-2-1 vörn. Leikurinn byrjaði á því að við vorum lamdir í spað, hitt liðið hafði ekki mikinn áhuga á að spila handbolta fyrsta korterið en því meiri áhuga á því að slást (ekki það að það henti mér e-ð illa:) ) En já sem sagt eftir korter þá vorum við 2 mörkum yfir og þeir búinir að fá 5x 2 min fyrir allt mögulegt, kýla í andlit, rífa aftan í og rífa kjaft við dómarann. Þanngað til þarna var ég nú bara búinn að spila nokkuð vel, vel varnarlega og með einhverjar 2-3 stoðsendingar og 2 fiskuð víti en þá tók ég uppá því að snúa mig á öklanum ofan í bakmeiðslin. Ég fór út af og lét teipa þetta eins fast og mögulegt var þannig að ég fann ekki fyrir fætinum og koma aftur inná í lok fyrri hálfleiks en gat lítið hreyft mig og fór aftur út af. Í seinni hálfleik gat ég svo ekkert spilað en liðið spilaði fínt og við enduðum á að vinna leikinn með 6 mörkum sem er nú alveg ásættanlegt í fyrsta leik, en liðið sem við spiluðum við er nú ekki talið eitt af toppliðunum hérna.

Eftir sigur í fyrsta leik erum við neðstir í deildinni með -2 stig, þar sem við byrjum með -4 stig vegna þess að liðið mitt ákvað að sleppa að taka þátt í evrópukepnninni og ákvað deildin þá að refsa þeim með þessum hætti....sem er alveg æðislegt! Ég get nú alveg verið sáttur með minn þátt í leiknum þó hann hefði mátt vera meiri, en mjög svekkjandi að vera meiddur í fyrsta leik og ég er ennþá með e-ð vesen í bakinu sem enginn veit hvað er, en er að fara til einhvers baksérfræðings í dag sem ætti að geta fundið það út!

Næsti leikur er svo á miðvikudaginn í næstu viku á móti liði frá Krít á útivelli, þannig að ég fer til Krítar í næstu viku sem er ekki slæmt og svo er strax aftur leikur á laugardeginum eftir það. Fyrir okkur þá þýðir lítið að vera tapa stigum núna í byrjun móts þar sem við byrjum með mínus 4 stig.

Fyrir utan handboltan er lífið bara mjög ljúft hérna, ennþá mjög gott veður hérna, svona 23-28 gráður á daginn og sól:) Dagurinn minn er yfirleitt mjög ljúfur, á virkum dögum vakna yfirleitt svona 9 og fæ mér að borða og fer svo annað hvort á lyftingaræfingu eða í sjúkraþjálfun eftir æfinguna fæ ég mér svo að borða með nokkrum strákum úr liðinu á veitingarstað á æfingarsvæðinu. Ég er svo kominn heim svona milli 1-2 og þá tekur bara við chill, playstation, netið, tv, leggja sig eða kannski einstaka sinnum kíkja úti búð með henni Möggu minni og ennþá sjáldnar að þrífa:) Svo er aftur æfing um kvöldið og þá bara venjuleg handboltaæfing, yfirleitt frá svona 7-9. Eftir æfingu er mismundani hvað ég geri, boðra stundum með strákunum úr liðinu eða fer heim og elda e-ð með Möggu eða við förum út að borða. Þetta eru svona nokkurnveginn hvernig virku dagarnir hjá mér eru, svo um helgar eru yfirleitt leikir á laugardögum og svo frí á sunnudögum þannig að þá getur maður kíkt út og gert e-ð sniðugt. En já þá hefuru það Hr. Claessen, svona er líf atvinnumannsins.....Ég get kannski lagt inn gott orð fyrir þig hérna hjá körfuboltaliðnu, það er mjög gott körfuboltalið í sama liði og ég er, enduðu held ég í 5. sæti í úrvalsdeildinni hérna í fyrra..Ég redda þessu fyrir þig og þú kemur hingað út!

En já þá er komið nóg í bili....

Kveðja frá greece

4 comments:

  1. Vona Jóhann minn að þú náir þér fljótt af meiðslunum, gangi þér vel. Ásj

    ReplyDelete
  2. er að fíl´edda. Þú ert bestur!

    Kv. Claessen

    ReplyDelete
  3. y0y0y0, gaman að fylgjast með þér gera góða hluti úti. Mundu að það er bara einn Jói.

    Pís át

    ReplyDelete