Tuesday, 29 September 2009

Fyrsti leikur og fleira...

Jæja þá kom loksins af því að undirbúningstímabilið endaði og deildin byrjaði, fyrsti leikurinn okkar var á heimavelli við lið sem heitir Argos sem er staðsett svona klukkutíma fyrir utan Aþenu.

Ég er búinn að vera e-ð meiddur síðustu 2 vikur og hef ekki getað æft á fullu en var nú samt í byrjunarliðinu í þessum leik, spilaði sem vinstri skytta í sókn og fyrir aftan í 3-2-1 vörn. Leikurinn byrjaði á því að við vorum lamdir í spað, hitt liðið hafði ekki mikinn áhuga á að spila handbolta fyrsta korterið en því meiri áhuga á því að slást (ekki það að það henti mér e-ð illa:) ) En já sem sagt eftir korter þá vorum við 2 mörkum yfir og þeir búinir að fá 5x 2 min fyrir allt mögulegt, kýla í andlit, rífa aftan í og rífa kjaft við dómarann. Þanngað til þarna var ég nú bara búinn að spila nokkuð vel, vel varnarlega og með einhverjar 2-3 stoðsendingar og 2 fiskuð víti en þá tók ég uppá því að snúa mig á öklanum ofan í bakmeiðslin. Ég fór út af og lét teipa þetta eins fast og mögulegt var þannig að ég fann ekki fyrir fætinum og koma aftur inná í lok fyrri hálfleiks en gat lítið hreyft mig og fór aftur út af. Í seinni hálfleik gat ég svo ekkert spilað en liðið spilaði fínt og við enduðum á að vinna leikinn með 6 mörkum sem er nú alveg ásættanlegt í fyrsta leik, en liðið sem við spiluðum við er nú ekki talið eitt af toppliðunum hérna.

Eftir sigur í fyrsta leik erum við neðstir í deildinni með -2 stig, þar sem við byrjum með -4 stig vegna þess að liðið mitt ákvað að sleppa að taka þátt í evrópukepnninni og ákvað deildin þá að refsa þeim með þessum hætti....sem er alveg æðislegt! Ég get nú alveg verið sáttur með minn þátt í leiknum þó hann hefði mátt vera meiri, en mjög svekkjandi að vera meiddur í fyrsta leik og ég er ennþá með e-ð vesen í bakinu sem enginn veit hvað er, en er að fara til einhvers baksérfræðings í dag sem ætti að geta fundið það út!

Næsti leikur er svo á miðvikudaginn í næstu viku á móti liði frá Krít á útivelli, þannig að ég fer til Krítar í næstu viku sem er ekki slæmt og svo er strax aftur leikur á laugardeginum eftir það. Fyrir okkur þá þýðir lítið að vera tapa stigum núna í byrjun móts þar sem við byrjum með mínus 4 stig.

Fyrir utan handboltan er lífið bara mjög ljúft hérna, ennþá mjög gott veður hérna, svona 23-28 gráður á daginn og sól:) Dagurinn minn er yfirleitt mjög ljúfur, á virkum dögum vakna yfirleitt svona 9 og fæ mér að borða og fer svo annað hvort á lyftingaræfingu eða í sjúkraþjálfun eftir æfinguna fæ ég mér svo að borða með nokkrum strákum úr liðinu á veitingarstað á æfingarsvæðinu. Ég er svo kominn heim svona milli 1-2 og þá tekur bara við chill, playstation, netið, tv, leggja sig eða kannski einstaka sinnum kíkja úti búð með henni Möggu minni og ennþá sjáldnar að þrífa:) Svo er aftur æfing um kvöldið og þá bara venjuleg handboltaæfing, yfirleitt frá svona 7-9. Eftir æfingu er mismundani hvað ég geri, boðra stundum með strákunum úr liðinu eða fer heim og elda e-ð með Möggu eða við förum út að borða. Þetta eru svona nokkurnveginn hvernig virku dagarnir hjá mér eru, svo um helgar eru yfirleitt leikir á laugardögum og svo frí á sunnudögum þannig að þá getur maður kíkt út og gert e-ð sniðugt. En já þá hefuru það Hr. Claessen, svona er líf atvinnumannsins.....Ég get kannski lagt inn gott orð fyrir þig hérna hjá körfuboltaliðnu, það er mjög gott körfuboltalið í sama liði og ég er, enduðu held ég í 5. sæti í úrvalsdeildinni hérna í fyrra..Ég redda þessu fyrir þig og þú kemur hingað út!

En já þá er komið nóg í bili....

Kveðja frá greece

Monday, 21 September 2009

Smá um handboltann...

Nú er ég búinn að vera hérna í að verða 7 vikur sem er 4 vikum lengur en ég hef áður verið að heiman. Hingað til er nú flest bara búið að ganga vel innan vallar sem utan.

Ég ætla að tala aðeins um liðið sem ég er í, Panellinos. Síðasta tímabil þá urðu þeir í 2. sæti í deildinni og töpuðu svo í úrslitakeppninni fyrir P.A.O.K, liði sem Kiddi Bje var hjá fyrir 2 árum. Mitt lið var efst í deildinni mest allt tímabilið en tapaði svo nokkrum stigum í lokin á tímabilinu og endaði í 2. sæti. Hérna er svo smá myndband frá leik úr úrslitakeppninni í fyrra, PAOK-Panellinos

Liði hefur misst nokkra leikmenn frá því í fyrra en fengið að ég held 6 nýja leikmenn og erum við með nokkuð sterkt lið og er stefnan tekinn á efri hlutann í deildinni. Við erum með 2 mjög góða hornamenn í sitt hvoru horninu og eru þeir báðir í gríska landsliðinu, annar þeirra eru búinn að spila nokkur ár í Þýskalandi, bundesligunni og 2. deildinni þar. Svo erum við með serba í hægri skyttunni sem er 22 ára og er mjög góður leikmaður, 2 gríska miðjumenn og annar þeirra hefur spilað einhverja leiki með landsliðinu, mig og annan ungan strák úr gríska u-20 ára landsliðinu í vinstri skyttu. Línumennirnir eru örugglega slakasta staðan hjá okkur, en þeir eru ekki alveg með það á hreinu hvað það er að blokka en bæta það kannski upp með því að vera allir mjög góðir að klára færin sín. Aðal markmaðurinn er svo hávaxinn strákur frá serbíu og er mjög góður.

Í æfingarleikjunum hingað til hefur vörnin verið okkar sterkasta hlið, við erum búnir að spila 9 leiki, fengum 28 mörk á okkur í einum leik sem var okkur slakasti leikur á móti liði frá kýpur en í hinum leikjunum höfum við aldrei fengið yfir 24 mörk á okkur sem er nú nokkuð gott en það hefur kannski vantað smá uppá sóknarleikinn. Mér hefur gengið nokkuð vel, búinn að vera spila svona 40-50 min í leik sem vinstri skytta í sókn og svo fyrir miðju í 6-0 vörn. Er reyndar ekki búinn að geta æft 100% í 10 daga núna, er e-ð meiddur í bakinu og búinn að vera í sjúkraþjálfun alla vikuna. Sjúkraþjálfunin er aðeins öðruvísi en heima, fyrsta sem var gert við mig eftir að ég hafði sagt að ég sagði sjúkraþjálfaranum hvað væri að mér var stinga sprautu í rassinn á mér....þetta hefur síðan verið gert daglega síðan síðustu 10 daga og er rassinn minn farinn að líta út eins og bossinn Ronnie Coleman vini mínum. Þetta er samt að hafa einhver áhrif því ég er allavegna orðinn mun betri og mun vonandi ná fyrsta leik sem er eftir 4 daga og mun ég vonandi geta æft á fullu í dag.

Annars nenni ég nú ekki að hafa þetta lengra í dag....

Kveðja úr 25 stiga hita og sól

Blogg....

Nei árið 2004 er ekki komið aftur en samt er ég að blogga…en vegna fjölmargra áskoranna(2) þá hef ég ákveðið að blogga um dvöld mína hérna í aþenu.

Ég mun aðallega nota þetta blogg til að kvarta yfir einhverju sem er að bögga mig hérna eða monta mig yfir einhverju skemmtilegu sem ég geri. Og svona til að byrja með þá ætla ég að gera stutt yfirlit á því sem ég hef gert og komið fyrir mig, skemmtilegt og leiðinlegt, síðan ég kom út…

Skemmtilegt:

1. Fór á leik í undankeppni meistaradeildarinnar, Panathinakos-Atletico Madrid sem var awesome!

2. Fór á MGMT tónleika sem voru ekki leiðinlegir

3. Fór á æfingarmót á Krít

4. Skoðaði Akrapolis(rétt skrifað?) og það var nokkuð kúl

5. Fann bestu súkkúlaðiköku í heimi!

6. Hitti Ronnie Coleman….sem er klárlega það besta sem ég hef gert hingað til!!

Leiðinlegt:

1. Er meiddur (er samt að verða betri)

2. Varð rafmagnslaust í miðri hamborgaragerð…..var frekar pirraður og bölvaði Grikkjum mikið og þeirra rafmagni!

3. Netið mitt er leiðinlegt og vill oftar en ekki hætta að virka

4. Fór á Inglorius Bastards í bíó hérna en vissi ekki að hálf myndin var á þýsku og frönsku…..stúdentsprófið mitt í þýsku skilaði mér því að ég skildi svona 5 orð í þýskuhlutanum

5. Þó að maturinn hérna sé nú frekar góður þá mætti einhver kynna grikkjum fyrir sósum, einu sósurnar sem þeir þekkja eru tómatsósa og sinnep!

En já þetta er nóg í bili, er latur og á örugglega ekki eftir að skrifa langar færslur hingað inn.

Kveðja frá Greece