Nei árið 2004 er ekki komið aftur en samt er ég að blogga…en vegna fjölmargra áskoranna(2) þá hef ég ákveðið að blogga um dvöld mína hérna í aþenu.
Ég mun aðallega nota þetta blogg til að kvarta yfir einhverju sem er að bögga mig hérna eða monta mig yfir einhverju skemmtilegu sem ég geri. Og svona til að byrja með þá ætla ég að gera stutt yfirlit á því sem ég hef gert og komið fyrir mig, skemmtilegt og leiðinlegt, síðan ég kom út…
Skemmtilegt:
1. Fór á leik í undankeppni meistaradeildarinnar, Panathinakos-Atletico Madrid sem var awesome!
2. Fór á MGMT tónleika sem voru ekki leiðinlegir
3. Fór á æfingarmót á Krít
4. Skoðaði Akrapolis(rétt skrifað?) og það var nokkuð kúl
5. Fann bestu súkkúlaðiköku í heimi!
6. Hitti Ronnie Coleman….sem er klárlega það besta sem ég hef gert hingað til!!
Leiðinlegt:
1. Er meiddur (er samt að verða betri)
2. Varð rafmagnslaust í miðri hamborgaragerð…..var frekar pirraður og bölvaði Grikkjum mikið og þeirra rafmagni!
3. Netið mitt er leiðinlegt og vill oftar en ekki hætta að virka
4. Fór á Inglorius Bastards í bíó hérna en vissi ekki að hálf myndin var á þýsku og frönsku…..stúdentsprófið mitt í þýsku skilaði mér því að ég skildi svona 5 orð í þýskuhlutanum
5. Þó að maturinn hérna sé nú frekar góður þá mætti einhver kynna grikkjum fyrir sósum, einu sósurnar sem þeir þekkja eru tómatsósa og sinnep!
En já þetta er nóg í bili, er latur og á örugglega ekki eftir að skrifa langar færslur hingað inn.
Kveðja frá Greece
var þessi kaka betri en kakan í skírnarveislunni hans Ása?? ég á mjög erfitt með að trúa því
ReplyDeleteNei vá! Sorry ég tek þetta til baka, enn þann dag í dag græt ég mig í svefn fyrir að hafa ekki borðað meira af henni!!
ReplyDeleteég lifi virkilega enn í voninni um að einhvern tímann borða hana aftur.. hún var ólýsanleg
ReplyDelete