Saturday, 17 October 2009

Jæja loksins nýtt blogg!

Nú er liðið talsverður tími frá því að ég bloggaði seinast og er ástæðan sú að netið mitt ákvað að hætta að virka og síðan þá er ég búinn að reyna allt sem vodafone hefur sagt mér að gera til að laga það, en þeir vita greinilega minna en ég um internetið góða og því hefur ekkert að þeirra góðu ráðum virkað og er netið ennþá niðri.

Er ekki rétt að fara í stuttu máli yfir það sem hefur gerst síðan ég bloggaði seinast, við erum búinir að spila 2 leiki í viðbót, annar leikurinn var á Krít á móti liðinu þaðan og hann fór jafntefli eftir að við höfðum verið 7 mörkum yfir í byrjun seinni hálfleik. Ég gat ekki spilað þann leik vegna meiðsla og vill ég meina að það hafi verið ástæðan fyrir jafnteflinu. Síðan spiluðum við annan leik nokkrum dögum seinna á móti liði sem heitir Kilkis og sá leikur vannst með 6 eða 7 mörkum. Ég spilaði um 40 min í þeim leik og spilaði bara nokkuð vel og setti 4 mörk. Þannig að eftir 3 leiki á tímabilinu erum við búnir að vinna 2 leiki og 1 jafntefli og ættum því að vera efstir í deildinni en sökum þess að við byrjuðum með 4 stig í mínus erum við bara með 1 stig!:)

Núna er ég staddur á hóteli einhverstaðar í norður Grikklandi u.þ.b. 8 tíma frá Aþenu og klukkutíma frá næst stærstu borginni hérna Tessaloniki. Við erum að fara spila leik á eftir á móti liðinu héðan (sem ég man bara ekki alveg hvað heitir). Ég er orðinn svona 90% heill af meiðslunum mínum, það eina sem er að bögga mig núna er öklinn minn sem bólgnar alltaf fallega upp eftir hverja æfingu og leik, en ég ætti samt að geta spilað á fullu í dag og býst fastlega við því að vera í byrjunarliðinu.

Við Magga erum búin að fá fyrstu heimsóknina til Aþenu og það eru Mamma og systur hennar Möggu, mjög góð tilbreyting að fá heimsókn þannig að allir þeir sem vilja koma í heimsókn eru meira en velkomnir. Seinasta vika fór þess vegna mikið í allskonar túrista dót sem var bara gaman, nema kannski þegar þær náðu að plata mig í verslunarferð.....sem var ekki eins gaman fyrir mig. Svo er planið að fara á akrapólis á sunnudaginn þegar ég verð kominn aftur heim.

Fyrir utan þetta þá er lítið að frétta, lífið gengur eins og venjulega og lítið hægt að kvarta, nema hvað að veðrið er aðeins farið að breytast, farið detta inn rigning einstaka sinnum og hittinn dettur undir 20 gráður á kvöldin....

En já ég er farinn að horfa á fangavaktina og slappa af fyrir leikinn

Kveðja frá Greece