Tuesday, 17 November 2009

Netið mætt á svæðið....

Jæja nú loksins er netið komið heim aftur eftir að það hafði yfirgefið okkur í tæpa 2 mánuði!! Og fyrir þau ykkar sem hafa ekki lent i því að vera yfirgefin af internetinu, þá er það ekkert djók, með erfiðari tímum lífs míns!
En nóg af því, núna hef ég líka enga afsökun fyrir því að nenna ekki að blogga og því skal ég lofa því að vera duglegri hérna.
Síðan ég koma hingað út hef ég haft mun meiri frítíma á mínum höndum en ég hafði áður vanist og flestir mundu þá halda að ég mundi nota þann tíma vel og gera margt og mikið uppbyggilegt........en nei svo er ekki! Ég hef komist af því að eftir því sem ég þarf að gera minna og hef minni skyldur því latari er ég, sem henni mömmu minni þætti nú ekkert rosalega jákvætt því henni fannst ég nú nógu latur fyrir (þó ég sé algjörlega ósammála því). Einfaldir hlutir eins og að blogga, fara út í búð eða leyfa sólinn að skína aðeins á mig verða mjög erfiðir viðureignar og nánast ómögulegir þegar ég hef svona mikinn lausan tíma. En nú mun það breytast! Allavegna að einhverju smá leyti, ég ætla allvegna að vera duglegri að blogga!

Frá því að ég skrifaði seinasta hefur talsvert gerst handboltalega séð, ég held að við höfum spilað 4 leiki síðan þá og það hefur nú ekki gengið neitt allt of vel, við unnum 1, 1 jafntefli og 2 töp sem er alls ekki ásættanlegt þar sem við eigum að vera með eitt af topp 4 liðinum hérna! Síðasta miðvikudag var svo skrifaður nýr kafli í íslenska handboltasögu þegar fyrsti íslendingaslagurinn í grískum handbolta átti sér stað, þá spilaði mitt lið við Ragga Njáls. félaga í Theramikos. Leikurinn var á heimavelli þeirra og náðum við loksins að spila að eðlilegri getu og unnum sanngjarnan 5 marka sigur. Ég spilaði bara nokkuð vel og setti held ég 4 mörk og spilaði fínan varnarleik. Raggi njáls var fyrir því óláni að fara úr lið á putta og spilaði því mjög lítið. Hann bætti það hins vegar upp með því að setja 17 mörk í 2 leikjum um helgina í evrópukeppninni! Næsti leikur hjá okkur er svo á laugardaginn á móti liði sem ég held að heiti Lucas en gæti samt heitið Doukas en það skiptir ekki öllu heldur er það sigur sem skiptir öllu máli þar. Þar sem við byrjuðum jú með -4 stig þá verðum við að ná í öll þau stig sem við getum til að komast í toppbaráttuna.

Af öðrum málum þá mun ég að öllum líkindum koma á klakann þann 23. des, mun fljúga héðan 22. des til london og hitta Rúnar G. sem kemur á sama tíma til london frá madríd og þar er svo planið að geyma töskurnar á flugvellinum taka lest í bæinn takk eitt stk. gott djamm þar og vona að við náum aftur á flugvöllinn aftur morguninn eftir til að fljúga heim. Veðbankar eru víst farinir að taka við veðmálum um það hvort við munum missa af fluginu okkar til ísl. og eru líkurinar víst ekki okkur í hag. Ég yfirgef svo landið aftur 5. jan.

En þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra að sinni

Kveðja frá Greece

ást og friður Jóhann

4 comments:

  1. Gaman að sjá hvað þér gengur vel þarna úti, mér gengur ekki jafn vel með tölfræðina ein....og ætla ég að skrifa það alfarið á þig :)
    En bið að heilsa konunni og vertu duglegur að skrifa fleiri færslur.

    kv.Marthe

    ReplyDelete
  2. Helena M JohannsdNov 17, 2009 02:56 PM

    Hæ, hæ Jóhann Gísli minn! ´
    Mikið er nú gaman að heyra frá þér. Ég má til að segja þér að hjarta mitt tók kipp af stolti í morgun þegar ég las Moggann, en þeir voru að með heilsíðu þar sem þeir sýndu alla ísl. handboltaspilara á landakorti með nafni og fána viðkomandi lands og var ekki nafnið þitt merkt inn á Aþenu, já það er nauðsynlegt að vera pínu montinn af fræknum frændum;) Gaman að heyra að allt er á uppleið og gangi þér vel kalli minn, knús á ykkur Möggu, þín frænka Helena;)

    ReplyDelete
  3. Hammer of ThorNov 18, 2009 02:58 AM

    ég þori að setja allan minn pening á það að þú vaknir í hliðargötu í London á sama tíma og flugvélin til Íslands fer á loft en þó með R.Grant innanborðs.

    ReplyDelete
  4. "En nóg af því, núna hef ég líka enga afsökun fyrir því að nenna ekki að blogga og því skal ég lofa því að vera duglegri hérna."

    þú bara stendur þig vel elskan.. haha

    sakna þín!!

    ReplyDelete