Nú er ég búinn að vera hérna í að verða 7 vikur sem er 4 vikum lengur en ég hef áður verið að heiman. Hingað til er nú flest bara búið að ganga vel innan vallar sem utan.
Ég ætla að tala aðeins um liðið sem ég er í, Panellinos. Síðasta tímabil þá urðu þeir í 2. sæti í deildinni og töpuðu svo í úrslitakeppninni fyrir P.A.O.K, liði sem Kiddi Bje var hjá fyrir 2 árum. Mitt lið var efst í deildinni mest allt tímabilið en tapaði svo nokkrum stigum í lokin á tímabilinu og endaði í 2. sæti. Hérna er svo smá myndband frá leik úr úrslitakeppninni í fyrra, PAOK-Panellinos
Liði hefur misst nokkra leikmenn frá því í fyrra en fengið að ég held 6 nýja leikmenn og erum við með nokkuð sterkt lið og er stefnan tekinn á efri hlutann í deildinni. Við erum með 2 mjög góða hornamenn í sitt hvoru horninu og eru þeir báðir í gríska landsliðinu, annar þeirra eru búinn að spila nokkur ár í Þýskalandi, bundesligunni og 2. deildinni þar. Svo erum við með serba í hægri skyttunni sem er 22 ára og er mjög góður leikmaður, 2 gríska miðjumenn og annar þeirra hefur spilað einhverja leiki með landsliðinu, mig og annan ungan strák úr gríska u-20 ára landsliðinu í vinstri skyttu. Línumennirnir eru örugglega slakasta staðan hjá okkur, en þeir eru ekki alveg með það á hreinu hvað það er að blokka en bæta það kannski upp með því að vera allir mjög góðir að klára færin sín. Aðal markmaðurinn er svo hávaxinn strákur frá serbíu og er mjög góður.
Í æfingarleikjunum hingað til hefur vörnin verið okkar sterkasta hlið, við erum búnir að spila 9 leiki, fengum 28 mörk á okkur í einum leik sem var okkur slakasti leikur á móti liði frá kýpur en í hinum leikjunum höfum við aldrei fengið yfir 24 mörk á okkur sem er nú nokkuð gott en það hefur kannski vantað smá uppá sóknarleikinn. Mér hefur gengið nokkuð vel, búinn að vera spila svona 40-50 min í leik sem vinstri skytta í sókn og svo fyrir miðju í 6-0 vörn. Er reyndar ekki búinn að geta æft 100% í 10 daga núna, er e-ð meiddur í bakinu og búinn að vera í sjúkraþjálfun alla vikuna. Sjúkraþjálfunin er aðeins öðruvísi en heima, fyrsta sem var gert við mig eftir að ég hafði sagt að ég sagði sjúkraþjálfaranum hvað væri að mér var stinga sprautu í rassinn á mér....þetta hefur síðan verið gert daglega síðan síðustu 10 daga og er rassinn minn farinn að líta út eins og bossinn Ronnie Coleman vini mínum. Þetta er samt að hafa einhver áhrif því ég er allavegna orðinn mun betri og mun vonandi ná fyrsta leik sem er eftir 4 daga og mun ég vonandi geta æft á fullu í dag.
Annars nenni ég nú ekki að hafa þetta lengra í dag....
Kveðja úr 25 stiga hita og sól
Monday, 21 September 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Þú verður skotinn á færi ef þú klikkar miðað við þessa áhorfendur þarna...
ReplyDeletekv. Brynjar
Hefuru einhverja hugmynd um hverju "sjúkraþjálfarinn" er að sprauta í rassinn á þér? Jafnvel orðinn agressívari, farinn að borða óeðlilega mikið og þyngjast?
ReplyDeleteKveðja,
Trausti Stef
já reyndar, en ég sé það bara sem jákvæðan hlut, hann segir mér að þetta sé voltaren og e-ð bólgueyðandi en ég hef svo sem aldrei séð neinar pakkningar....En já Brynjar ég held að það sé best að skora úr öllum færum sem maður fær
ReplyDeleteÉg er fáránlega forvitinn að vita hvaða ólyfjan er verið að dæla í þig. Þú verður að tékka á þessu. Bloggið fer annars í bookmarks og heldur manni vonandi sem oftast frá því að lesa hérna heima á klaka.
ReplyDeletekv, Steinþór
This comment has been removed by the author.
ReplyDeleteva skeit a mig og deletadi ovart commentinu minu... allavega, anaegdur med thig ad vera kominn med blogg lika!!
ReplyDeleteeg linka a thig...
verdum i bandi gamli ;)
Farðu nú að láta heyra í þér, þýðir ekki að láta vikur og vikur líða á milli gjemle gjemle. Menn eru þyrsti að heyra hvernig atvinnulífið gengur...
ReplyDeleteKv. Svenni Claessen
Thank You and I have a neat supply: Who Does Renovations house remodeling company
ReplyDelete